Minnisblað til stjórnar um öryggisþjálfun
Öryggisstjóri þarf oftast samþykki stjórnar eða framkvæmdastjóra áður en þjálfun er keypt. Þetta minnisblað er tilbúið til að senda áfram: hvað NIS2 krefst af stjórn, hvað er lagt til, hvað það kostar og hvaða ákvörðun er óskað eftir. Ein prentuð síða.
Fyrir hvern
Öryggisstjóra, upplýsingatæknistjóra eða þann sem ber ábyrgð á netöryggi og þarf að fá öryggisvitundarþjálfun samþykkta hjá stjórn eða framkvæmdastjórn.
Hvað er í skjalinu
- Hvað NIS2 krefst af stjórn, í fjórum atriðum.
- Hvað er lagt til: mánaðarleg þjálfun alls starfsfólks og hvaða skjalfesting verður til.
- Kostnaður samkvæmt verðskrá Varhuga, með reit fyrir ykkar fjölda og árskostnað.
- Ákvörðunin sem óskað er eftir, í einni setningu.
Svona notarðu það
- Opnaðu skjalið.
- Fylltu í gulu reitina: nafn fyrirtækis, dagsetningu, fjölda starfsfólks og áætlaðan árskostnað.
- Prentaðu eða vistaðu sem PDF með Ctrl+P eða Cmd+P.
- Sendu það með fundarboði stjórnar eða framkvæmdastjórnar.
Gulu reitirnir prentast sem venjulegur texti í hornklofum.
Tengt efni
Sniðmátið er almenn leiðbeining og ekki lögfræðiráðgjöf. Aðlagið textann að ykkar aðstæðum.

